Samkoma 13. apríl

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Yndislegu vinir! 
Ég vona svo sannarlega að Páskahátíðin hafi farið vel með ykkur og að við getum mætt aldeilis fersk aftur á UNÍK samkomu í kvöld kl. 20 Wink
Hann Ingvar ætlar að tala til okkar um afar mikilvægt efni og munum við eiga góða bænastund í framhaldi af því. Snillingurinn Unnar Freyr Erlendsson ætlar að vera með orð&bæn og segja okkur frá smá snilldar vitnisburði! Einnig verður þrusugott skemmtiatriði í pokahorninu, sjoppan opin eftir samkomuna og síðasta en ekki síst verður mögulega æðislegt FLIPP eftir samkomuna sem kemur í ljós dadadadaaaaaaam... Cool 
Hlakka til að sjá sem flesta jáh!! Laughing

kv. Anna Bergljót

 

Ölvermót 9.-11. mars 2012

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Upplýsingar varðandi Ölversmót! 

Nú nálgast Ölversmótið hratt og spennan er í hámarki! Cool Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar sem gott er að kynna sér:

 Brottför og heimkoma

  • Mæting er uppí kirkju (fossaleyni 14) á slaginu: 16:42 og lagt af stað 16:59, föstudaginn 9. mars
  • Brottför úr Ölveri er áætluð kl. 15 og heimkoma því kl. 16 í kirkjuna sunnudaginn 11. mars

 Bílamál

Farið verður á einkabílum uppeftir og því nauðsynlegt að mæta snemma uppí kirkju til þess að fá sæti. Farþegar borga bensínkostnað en ekki bílstjóri nema annað sé samið um. Bensínkostnaður og verð í göngin gæti verið á bilinu 1100 -1500 kr. á mann ef fjórir deila verðinu.

Hvað á að taka með sér?

  • Biblíu + glósubók + penna
  • Svefnpoka + kodda
  • Tannbursta + TANNKREM
  • Handklæði og tilheyrandi snyrtivörur
  • Sundföt (þó ólíklegt sé að þau verði notuð) 
  • Náttföt
  • Nærföt til skiptanna
  • Föt til skiptanna
  • Útiföt eftir veðri - http://www.vedur.is/
  • Góðan skófatnað
  • Nammipening
  • Góða skapið

Leyfisbréf?

Já, ef þú ert undir 18 ára.  Leyfisbréfi skal skilað á föstudaginn áður en komið er uppí Ölver. Leyfisbréf þarf að vera undirritað af foreldri eða örðum jafngildum forráðamanni. Ef þú hefur ekki fengið leyfisbréf sendu þá meil á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og við sendum þér það undir eins. 

 

Samkoma 2. mars

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Í dag er föstudagur SJIBBÍ JEI!
UNÍK samkoma uppí kirkju verður á slaginu 20:00 eins og vanalega. 
Að þessu sinni mun hún Tinna Lind vera með ræðu kvöldsins, hann Ólafur nokkur Jón mun sjá um stórmagnað skemmtiatriði, Kristinn mun leiða mannskapinn inní lofgjörð og síðast en ekki síst ætlum við að hitta hvort annað og eiga frábært kvöld saman :D 

-Hægt verður að skrá sig á Ölversmótið!
 
Síða 1 af 15
unik_logo_161110

Innskráning

Visbo 2011

Visbo 2011

Á döfinni

bolir Á næstunni ætlum við að búa til boli fyrir UNIK með nýju lógói. Fylgist með og takið þátt!
unik_logo
Findu okkur á Facebook